Samgönguráð
Samkvæmt lögum um samgönguáætlun, nr. 33/2008, skipar ráðherra samgönguráð sem gerir tillögu til ráðherra að samgönguáætlun og fimm ára aðgerðaáætlun samgönguáætlunar, stefnu og forgangsröðun, að fengnum áherslum ráðherra, sbr. 2. og 3. gr.
Í samgönguráði sitja tveir fulltrúar ráðherra og skal annar þeirra vera formaður, forstjóri Vegagerðarinnar, forstjóri Samgöngustofu og forstjóri Isavia ohf. Þá situr í samgönguráði fulltrúi þeirrar skrifstofu ráðuneytisins sem fer með samgöngumál. Skipunartími samgönguráðs takmarkast við embættistíma þess ráðherra sem skipar.
Samgönguráð er þannig skipað:
- Lilja Einarsdóttir, formaður og fulltrúi ráðherra,
- Gissur Jónsson, varaformaður og fulltrúi ráðherra,
- Bergþóra Þorkelsdóttir, vegamálastjóri,
- Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Samgöngustofu,
- Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia ohf.,
- Ólafur Kr. Hjörleifsson, skrifstofustjóri.
Eftirtaldir sitja fundi samgönguráðs:
- Árni Freyr Stefánsson, sérfræðingur, innviðaráðuneyti,
- Friðfinnur Skaftason, verkfræðingur, innviðaráðuneyti.
Auk ofangreindra aðila koma starfsmenn samgöngustofnana, ráðgjafar, fulltrúar sveitarfélaga, atvinnulífs, háskólasamfélagsins og fleiri samráðsaðila að gerð samgönguáætlunar.
Erindi til samgönguráðs skal senda á netfangið [email protected].