Verkefnisstjórn um undirbúning Sundabrautar
Innviðaráðherra hefur skipað verkefnisstjórn um undirbúning Sundabrautar. Verkefnisstjórnin hefur það hlutverk að hafa umsjón með og fylgja eftir undirbúningi framkvæmdarinnar. Fyrir liggur að Sundabraut mun hafa í för með sér mikinn samfélagslegan ávinning og því er mikilvægt að undirbúningur framkvæmdarinnar sé í traustum skorðum. Bygging brautarinnar er umfangsmikið og flókið verkefni enda er hún ein dýrasta einstaka vegaframkvæmd sögunnar hér á landi. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist 2026 og brautin verði tekin í notkun eigi síðar en 2031. Til að svo megi verða er mjög aðkallandi að unnið verði markvisst að undirbúningi framkvæmdarinnar, þar á meðal mati á umhverfisáhrifum, útfærslu valkosta og samkomulagi við Faxaflóahafnir og fyrirtæki í Sundahöfn. Hagsmunaaðilar eru margir og mikilvægt að gott samráð verði viðhaft á öllum stigum verkefnisins.
Skipunartími verkefnisstjórnarinnar takmarkast við ákvörðun ráðherra eða embættistíma hans.
Verkefnisstjórnin er svo skipuð:
Guðmundur Valur Guðmundsson, formaður, fulltrúi Vegagerðarinnar,
Bergþóra Þorkelsdóttir, fulltrúi Vegagerðarinnar,
Árni Freyr Stefánsson, fulltrúi innviðaráðuneytis,
Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir, fulltrúi Reykjavíkurborgar,
Sævar Freyr Þráinsson, fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga.